1.
14.08.2007
2.
Björgólfur sýnir auðmýkt í viðtalinu í dag. Hann var lélegur í upphafi móts en hefur nú skorað sex mörk í sumar.
Hjalti Þór Hreinsson skrifar:
Björgólfur Takefusa skoraði þrennu gegn sínum gömlu félögum í Fylki í 3-0 sigri KR á sunnudag. Hann er leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. Hann fór frá Fylki eftir sumarið 2005 og skoraði tvö mörk gegn Árbæingum 2006.
„Ég reyni nú samt ekkert meira á mig gegn þeim en öðrum,” sagði Björgólfur léttur í gær. „Ég var skelfilegur fyrstu tvo eða þrjá leikina í sumar. Alveg hörmulegur. Svo hefur þetta gengið aðeins betur, heppnin hefur loksins aðeins verið með mér í þessu. Hún þarf að gera það. Vonandi helst hún út tímabilið.”
Björgólfur er markahæstur í deildinni með sex mörk í sex leikjum, þar af eitt úr víti. Guðmundur Steinarsson hefur skorað sex mörk í sjö leikjum, þrjú úr vítum. „Ég er þegar búinn að bæta þennan frábæra árangur frá því í fyrra,” sagði Björgólfur í kaldhæðnistón en hann skoraði aðeins fjögur mörk í fyrra.
„Þetta er langbesti sóknarleikur sem við höfum spilað frá því ég kom. Mér finnst ég aldrei hafa verið í jafn miklu liði frá því ég kom,” sagði Björgólfur og átti þar við andann í liðinu. „Í síðustu leikjum höfum við verið sem eitt lið og það er kominn meiri léttleiki í þetta. Menn eru ekki að taka hlutunum of alvarlega. Þú nærð ekki árangri í neinu ef þú hefur ekki gaman að því.”
KR átti lélegt tímabil í fyrra og er sóknarmaðurinn ekki í vafa um hvað var að. „Léttleikinn er eitthvað sem vantaði síðasta sumar. Það var aldrei neinn léttleiki og menn voru bara í þunglyndi. Það þýðir ekkert. Við höfum talað um það í sumar, til dæmis eftir Keflavíkurtapið, að passa að við dettum ekki of mikið niður í volæði. Við viljum bara svara fyrir okkur inni á vellinum sem við og gerðum.”
Björgólfur segir að hausinn á mönnum hafi verið tekinn í gegn, þar á meðal á sér sjálfum, þá sérstaklega eftir slaka leiki í fyrstu umferðunum. „Mér finnst tvímælalaust hafa verið hugarfarsbreyting hérna í Vesturbænum. Það var skömm að fyrstu leikjunum, ég hef aldrei verið slakari í fótbolta en þarna. En hugarfarið breyttist kannski. Ég var settur á bekkinn gegn FH en fékk svo tækifæri þar sem ég náði að skora. Eftir það hefur gengið ágætlega,” sagði Björgólfur, sem hefur skorað í þremur leikjum í röð.
Björgólfur hrósaði einnig Loga Ólafssyni þjálfara, sem hann segir hafa komið með nauðsynlegar áherslubreytingar og títtnefndan léttleika. „Við reynum að halda honum í sumar þrátt fyrir misjafnt gengi. Við þurfum að fá stöðugleika í okkar úrslit en mér hefur fundist vera stígandi í okkar leik í sumar.”
Einn af þeim sem hjálpað hafa liðinu mikið að mati Björgólfs er Markús Kislich, fiðlusmiður og lyftingaþjálfari. „.Við höfum aukið okkur í styrk. Óskar Örn Hauksson er orðinn til dæmis orðinn helmassaður. Hann er reyndar alltaf duglegur í bekknum, að sýna okkur eftir æfingar og svona. Hann hefur í það minnsta tekið einhverjum framförum,” sagði Björgólfur Takefusa.
3.
“Erum með betra lið en í fyrra” (viðtal)
Skrifað af: Páli Kristjánssyni í flokknum Greinar
Jónas Guðni Sævarsson stimplaði sig heldur betur inn í KR liðið síðasta sumar. Þessi baráttuglaði miðjumaður var einn allra besti leikmaður liðsins og vann hug og hjörtu stuðningsmanna KR á sínu fyrsta tímabili. Jónas tók við fyrirliðabandinu á miðju sumri og leiddi liðið til sigurs í bikarkeppninni. Með frammistöðu sinni hefur Jónas verið að banka á dyrnar hjá landsliðinu og með sama áframhaldi mun hann leika stærra hlutverk þar áður en langt um líður. Við tókum Jónas tali og spurðum hann út í breytingarnar á KR liðinu, þjálfarana, komandi sumar og margt fleira.
Jónas fer hér fyrir liðinu í fögnuði eftir bikarleikinn
Hvernig er stemmningin í hópnum í dag?
Stemmningin er mjög góð og er æfingaálagið gríðarlega mikið í ár enda æfum við allt upp í 9 sinnum í viku ásamt einum leik. Þetta eru 5 fótboltaæfingar og 4 lyftingaæfingar. Þetta er mikil breyting frá undirbúningstímabilinu í fyrra en þá var yfirleitt aðeins ein sameiginleg fótboltaæfing á viku. Við erum mjög ánægðir með þessa breytingu enda finnst manni fátt skemmtilegra en að spila fótbolta.
Eitt sem mig langar að nefna varðandi stemmninguna að þá var klefanum okkar breytt rétt fyrir tímabilið 2008. Áður vorum við í tveimur aðskildum klefum, yngri leikmenn öðru megin og eldri hinu megin. Nú er þetta einn sameiginlegur klefi sem bætir stemmninguna og samskipti leikmanna.
Margir stuðningsmenn KR hafa velt fyrir sér áhrifum Markúsar, hins þýska. Geturðu sagt okkur aðeins af honum? Hvernig týpa er hann og þá ekki síður – hvað er hann að gera fyrir ykkur?
Markus fiðlusmiður er algjör snillingur. Hann heitir Markus Kislich og titlar sig sem Athletic Strength Coach, Trainer of Champions. Hann er eins og þú segir þýskur en það eru sögusagnir um að hann sé í raun pólskur en ég held að það sé algjört kjaftæði. Markús er með allt á hreinu hvað varðar styrk, snerpu, úthald, mataræði eða sem sagt allt til þess að koma okkur í besta mögulega líkamlega formið . Hann hefur svo einnig verið að taka menn í meðferðir ef við lendum í einhverjum meiðslum. Stebbi sjúkraþjálfari sér þó alfarið um meiðsli leikmanna en Markús hefur sem sagt verið að meðhöndla okkur aukalega. Þessi meðhöndlun hans er ekkert grín en ég held að það fari allir að gráta úr sársauka þegar hann borar þumalfingri sínum inn í vöðvann. Þessi meðferð hans er kölluð ,,the smoking thum,,.
Það sem hann er að gera fyrir okkur er sem sagt að undirbúa og viðhalda líkamlegu formi leikmanna þannig að við séum sem best undirbúnir og í sem bestu formi fyrir og á tímabilinu.
Jónas var valinn leikmaður ársins af samherjum sínum í KR liðinu
-
4.
LOGI Ólafsson er þjálfari KR og er þetta annað árið sem hann er með liðið. Honum til aðstoðar er Pétur Pétursson aðstoðarlandsliðsþjálfari, Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari og þýski fiðlusmiðurinn Markus Kislich, sem sér um kraftþjálfun hjá félaginu.
5.
(Jón Arnór spólar sig í gegnum Stjörnuvörnina sem lak líkt og gatasigti í kvöld)
,,Þessi sigur okkar er alls ekki að fara að bæta fyrir tapið gegn Stjörnunni í Höllinni á sunnudag! Það hefði ekki skipt neinu máli að vinnan þennan leik með 50 stiga mun því leikurinn í kvöld hefur ekki nálægt því sömu þýðingu og bikarleikurinn,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR eftir stórsigur sinna manna á nýkrýndum Subwaybikarmeisturum Stjörnunnar. Lokatölur leiksins voru 116-87 KR í vil sem áttu sigurinn vísann strax í fyrri hálfleik. Garðbæingar fengu ærlega yfirhalningu í DHL-Höllinni og sáu aldrei til sólar gegn baráttuglöðum KR-ingum sem allir komust á blað í kvöld. KR er sem fyrr á toppi Iceland Express deildar karla nú þegar 18. umferðin er hafin en Grindvíkingar fylgja þeim sem skugginn.
,,Við erum búnir að fara vel yfir okkar mál og nú erum við að hefja nýtt tímabil! Frá mér og niður voru svona tveir leikmenn sem áttu góðan leik í Höllinni og enginn þjálfari og það er ekki vænlegt til árangurs,“ sagði Benedikt Guðmundsson og ljóst að sigurinn hafði lítil áhrif á hann í kvöld. ,,Við þurfum að klára okkar leiki og þar liggur einbeitingin okkar núna, við tókum ansi djúpa dýfu í Höllinni og tíminn hefði ekki getað verið verri. Nú erum við einbeittari sem aldrei fyrr,“ sagði Benedikt.
Baldur Ólafsson átti magnaða innkomu í liði KR en hann lék aðeins tæpar 10 mínútur í leiknum og gerði á þeim tíma 12 stig, tók 6 fráköst og varði 2 skot. Er hann að reyna að sanna eitthvað fyrir Benna þjálfara?
,,Hann er búinn að vera í þjálfun hjá Þjóðverja sem er að vinna fyrir okkur og hann er að skila Baldri af sér í ágætu standi og eins og staðan er núna getur hann skilað 3-4 mínútum í sitt hvorum hálfleiknum. Baldur getur alltaf skorað en hefur verið að komast hægt og rólega inn í vörnina hjá okkur,“ sagði Benedikt en vörn KR var glæsileg í kvöld framan af leik en bæði lið léku kæruleysisbolta nánast allan síðari hálfleikinn því KR var búið að gera út um leikinn.
Darri Hilmarsson var í byrjunarliði KR í kvöld og lét strax fyrir sér finna er hann gerði fjögur fyrstu stig leiksins. Fannar Ólafsson miðherji KR lenti snemma í villuvandræðum og lék lítið í leiknum í kvöld en hann fékk m.a. 3 villur snemma í fyrsta leikhluta. Heimamenn í KR leiddu 21-19 í fínum upphafsleikhluta og allt benti til þess að góður leikur væri framundan en svo varð raunin aldeilis ekki.
KR pressaði vel á gesti sína sem töpuðu 22 boltum í leiknum. Snemma í öðrum leikhluta höfðu KR-ingar gert 16 stig gegn 4 frá Stjörnunni og staðan orðin 37-23. Vörn heimamanna var fyrnasterk og Stjörnumenn virtust einfaldlega ekkert erindi eiga í leikinn, hvort þeir hafi verið saddir og ekki fundið neistann til að berjast skal ósagt látið en þetta var fjarri því sama lið og fagnaði bikarmeistaratitlinum síðasta sunnudag.
Leikar stóðu svo 59-37 í háflleik fyrir KR þar sem Darri Hilmarsson og Jason Dourisseau voru báðir komnir með 11 stig hjá KR en þeir Jovan Zdravevski og Justin Shouse voru báðir með 12 stig í liði Stjörnunnar.
Síðari hálfleikur var aldrei spennandi en Vesturbæingar allir sem einn sýndu sínar bestu hliðar þar sem allir skoruðu í leiknum og sjö leikmenn liðsins gerðu 10 stig eða meira í leiknum. Að loknum þriðja leikhluta var staðan 89-54 fyrir KR og margir hreinlega farnir að bíða eftir að aftökunni lyki.
Loks kom að því að lokaflautan gall og sýndi nýja leikklukkan í DHL-Höllinni þá stöðuna 116-87 sigur KR og nánast ótrúlegt að Stjarnan hafi fyrir fáeinum dögum lagt KR að velli í bikarúrslitaleik. Frammistaða Stjörnunnar voru talsverð vonbrigði en þeirra atkvæðamesti maður í kvöld var Jovan Zdravevski með 30 stig og Justin Shouse gerði 20.
Hjá KR voru þeir Helgi Már Magnússon og Jason Dourisseau báðir með 16 stig og Jón Arnór Stefánsson gerði 14.


